Þjálfun Þrifastjóra
Sérsniðið námskeið fyrir þrifastjóra í stjórnun þrifa og teymis. Sjá nánar um námskeiðið hér að neaðan. Kostnaður við námskeiðið:
- Námskeiðsgögn 35.000 kr + vsk.
- Að auki bætist við ferðakostnaður og tími á staðnum.
Eftir greiðslu staðfestingargjalds þá höfum við samband og vinnum verkið í samvinnu við þig og þínar þarfir.
Námskeið fyrir Þrifastjóra sérsniðið að hverri vinnslu. Þrifastjóri er lykillinn að árangri í þrifum og hver vinnsla er einstök. Við sníðum námskeiðið af ykkar þörfum, hvort sem það er stutt og hnitmiðað eða lengri eftirfylgni og aðstoð við þrifastjórann.
Farið er yfir: a) Mikilvægi þess að halda vinnslu hreinni b) Að stjórna þrifateymi c)Hvernig á að stjórna örverunum? d) Samvinna í þrifateymi e) Áætlanagerð f)Samvinna milli vinnslu og þrifateymis. g) Þrifaplön og sápur.
Námskeiðið er sérsniðið að hverri vinnslu. Og er að lágmarki tveir dagar, þ.e. 2 x 4 bóklegir tímar. Og með verkefnavinnu á milli tíma.
Námskeiðið má einnig gjarnan vera viðameira og má gjarnan ná yfir lengra tímabil, þar sem árangur í vinnslunni er tekinn út í byrjun og svo etv á 2.5 mánaða fresti í allt að 6 skipti, og feedback gefið. Talið er að það taki 1.5 ár fyrir þrifastjóra að ná fullkomnum tökum á verkefninu.
Samtvinna má inn í námskeiðið gerð þrifaplana og auka samvinnu við aðra aðila fyrirtækisins.