Færanleg þvottastöð 25bar LWPM II 2030
Lágþrýstiþvottastöð 25 bara á hjólum. Einstaklega hentug fyrir litlar vinnslur, eða líka stærri, þar sem starfsemin er dreifð um húsið. Þessi útgáfa inniheldur ekki slönguhjól, en hægt er að bæta því við. Einnig má festa slönguhjól á vegg á hverjum vinnslustað ef þeir eru dreifðir og rúlla stöðinni á milli. Stöðin hefur statíf fyrir sápu og sótthreinsi brúsa og það fylgir með þrýstislanga, byssa, spjót og spíssar.
Ef 40 bara þrifastöð hentar ekki, etv vegna hættu á krossmengun vegna úða eða ef vinnslubúnaður er viðkvæmur, þá gæti 25 bara kerfi verið lausnin.
Dynamic Snippet þitt mun birtast hér...
Þessi skilaboð birtast vegna þess að þú gafst ekki upp bæði síu og sniðmát til að nota.