Lumitester smart ATP/ADP/AMP A3
Lumitester smart ATP-A3 er frábær og hárnákvæmur ATP mælir. A3 tæknin gerir það að verkum að hann mælir ekki eingöngu ATP heldur einnig ADP og AMP.
Við skulum útskýra málið aðeins betur. ATP stendur fyrir Adenosine TriPhosphate (þríliða), ADP stendur fyrir Adenosine DiPhosphate (tvíliða) og því má geta sér til um að M-ið standi fyrir Mono eða einliða. Þetta er sem sagt lífrænt efni sem verið er að mæla. Við þvott og hitun brotna gjarnan liður af sameindinni, án þess að hún endilega hverfi. Með því að mæla allar þrjár og slá niðurstöðunum saman í eina tölu má fá mun nákvæmari og stabílli mælingu á því hvort allt lífrænt efni hafi verið þrifið eða ekki.
Lumitester ATP-A3 mælirinn notast við LuciPack sýnatökupinna. Þeir eru til í þremur gerðum a) Surface, þ.e. þurrir pinnar sem henta fyrir blautt yfirborð b) pre-moistened eða bleyttir pinnar, sem henta vel fyrir þurr yfirborð. Að lokum c) Vatns pinnar, en þeir henta til að mæla ATP-A3 í vatnssýni (þ.e. til að vita hvort lífrænt efni leynist í vatninu, en það getur t.d. gefið til kynna hvort lífrænt efni sé í lögnum eða vatnsuppsprettu).