Snúnings röraspíss HK1250 með 5m slöngu LP tengi
Þessi netti snúnings spúlspíss er rétt um 18-19mm í þvermál og kemst því líklega inn í 20mm beint rör, en ætti því að geta þrifið 25mm - 100mm rör og holrúm. Er sérstaklega ætlaður til að hreinsa slægingarverkfæri í laxa slægingarvélum og hentar best með 40 bara lágþrýsti þrifakerfi, en hann má þó einnig nota með öðrum kerfum. Fimm metra slangan er hugsuð þ.a. auðvelt sé að þrífa verkfæri slægingarvélanna, en við getum einnig skaffað aðrar lengdir. Kemur með lágþrýsti (LP) hraðtengi.
Dynamic Snippet þitt mun birtast hér...
Þessi skilaboð birtast vegna þess að þú gafst ekki upp bæði síu og sniðmát til að nota.