Þrifanámskeið á staðnum - staðfestingargjald
Sérsniðið að þörfum hvers fyrirtækis
Þjálfun starfsmanna í þrifateymi og annarra sem koma að undirbúningi fyrir þrif.
Sjá nánari lýsingu á innihaldi námskeiðs hér að neðan. Hver þátttakandi fær námskeiðsgögn og staðfestingu á þátttöku.
Námskeiðskostnaður er:
- Námskeiðsgögn 20.000 kr + vsk á mann
- Að auki bætist við ferðakostnaður og tími á staðnum.
Við greiðslu staðfestingargjalds hefjumst viðhanda við að sérsníða námskeiðið fyrir þig.
Þrifanámskeið sérsniðið að þörfum fyrirtækis – í húsakynni fyrirtækis.
Kaupandi námskeiðs þarf að skaffa fundarsal með skjá þar sem þáttakendur geta fylgst með námskeiðinu. Þáttakendur þurfa að fá frí frá vinnu á meðan á námskeiði stendur. Ekki er æskilegt að fleiri en 8 taki þátt í einu, amk ekki í verklega hluta námskeiðsins.
Bóklegi hlutinn: a)Af hverju að þrífa? b) Öryggismál við meðhöndlun hreinsiefna c) Örverufræði d) Þrifaferillinn e) Hópvinnan
Verklegi hlutinn fer fram í vinnslusal fyrirtækisins og með þeim tækjum sem þar er fyrir hendi. Í þessum hluta er ekki æskilegt að fleiri en 8 taki þátt í einu, en einnig er mögulegt að skipta hópnum upp þegar kemur að verklega hlutanum.
Námskeiðsgögn og staðfesting á þáttöku fylgir.