HACCP2 námskeið hjá viðskiptavini
HACCP 2 er námskeið matvælaöryggis. Námskeiðið hentar starfsfólki og stjórnendum sem koma að gæðamálum og vilja styrkja verklag og eftirlit. Sjá nánar um innihald hér að neðan.
- 20.000 kr + vsk í námsgögn per mann.
-Að auki bætist við ferðakostnaður og tímalaun á staðnum.
Við móttöku staðfestingargjald þá tökum við frá tíma og skipuleggjum námskeiðið í samvinnu við þig. Verðið skiptist í:
HACCP 2 er námskeið matvælaöryggis sem byggir á grunnþekkingu og fer í áhættur og fyrirbyggjandi aðgerðir í matvælavinnslu. Námskeiðið hentar starfsfólki og stjórnendum sem koma að gæðamálum og vilja styrkja verklag og eftirlit.
Á námskeiðinu er farið yfir:
Áhættur tengdar matvælaframleiðslu
- Örverur sem geta valdið sjúkdómum
- Mengun matvæla vegna efna
- Aðskotahlutir í matvælum
- Ofnæmisvaldandi efni og innihaldsefni
Meðhöndlun og geymsla matvæla
- Krossmengun: skilgreining og leiðir til að koma í veg fyrir hana
- Mikilvægi réttrar kælingar fyrir matvælaöryggi
Fyrirbyggjandi ráðstafanir
- Þrif og áætlanir um reglubundin þrif
- Varnir gegn meindýrum og eftirliti
- Val og eftirlit með birgjum: gæðakröfur og mat
- Kvörðun og regluleg prófun mælitækja
Starfsfólk og hæfni
- Umgengni, persónulegt hreinlæti og heilbrigðisástand starfsmanna
- Þjálfun: hæfnikröfur, þjálfun starfsmanna og gerð þjálfunaráætlana
Námskeiðið leggur áherslu á hagnýta nálgun og raunveruleg dæmi úr vinnslu.
Lengd: 4 klukkustundir (kennt yfir 2 daga)
Staðsetning:
- Í fundarsal hjá Aquatiq eða við komum á staðinn til ykkar
Markmiðið er að efla skilning á áhættum, bæta verklag og styðja við örugga og faglega matvælavinnslu.