Skip to Content

HACCP2 námskeið hjá Aquatiq

https://aquatiq.exigo.is/web/image/product.template/175/image_1920?unique=cb310b2

Námskeiðið hentar starfsfólki og stjórnendum sem koma að gæðamálum og vilja styrkja verklag og eftirlit.

Námskeiðsgjaldið er 75.000 kr + vsk per þátttakanda. Og. hópastærðir eru frá 5-20 manns. Með því að borga staðfestingargjald þá tökum við frá pláss og finnum tíma þegar næg þátttaka hefur náðst.

0 kr 0 kr
5.000 kr

Þessi samsetning er ekki til.

HACCP 2 er námskeið matvælaöryggis sem byggir á grunnþekkingu og fer í áhættur og fyrirbyggjandi aðgerðir í matvælavinnslu. Námskeiðið hentar starfsfólki og stjórnendum sem koma að gæðamálum og vilja styrkja verklag og eftirlit.

Á námskeiðinu er farið yfir:

Áhættur tengdar matvælaframleiðslu

  • Örverur sem geta valdið sjúkdómum
  • Mengun matvæla vegna efna
  • Aðskotahlutir í matvælum
  • Ofnæmisvaldandi efni og innihaldsefni

Meðhöndlun og geymsla matvæla

  • Krossmengun: skilgreining og leiðir til að koma í veg fyrir hana
  • Mikilvægi réttrar kælingar fyrir matvælaöryggi

Fyrirbyggjandi ráðstafanir

  • Þrif og áætlanir um reglubundin þrif
  • Varnir gegn meindýrum og eftirliti
  • Val og eftirlit með birgjum: gæðakröfur og mat
  • Kvörðun og regluleg prófun mælitækja

Starfsfólk og hæfni

  • Umgengni, persónulegt hreinlæti og heilbrigðisástand starfsmanna
  • Þjálfun: hæfnikröfur, þjálfun starfsmanna og gerð þjálfunaráætlana

Námskeiðið leggur áherslu á hagnýta nálgun og raunveruleg dæmi úr vinnslu.

Lengd: 4 klukkustundir (kennt yfir 2 daga)

Staðsetning:

  • Í fundarsal hjá Aquatiq, Grandagarði 16, 101 Rvk.

Markmiðið er að efla skilning á áhættum, bæta verklag og styðja við örugga og faglega matvælavinnslu.