Gerð gæðahandbókar
Tökum að okkur að útbúa gæðahandbækur í samræmi við HACCP kröfur.
Við vinnum gæðahandbókina í samvinnu við þig og fyrirtæki þitt. Þar sem gerð gæðahandbókar er ákveðið ferli sem er sérsniðið að þinni vinnslu þá gerum við samning um mánaðarlegt vinnuframlag og rukkun fast mánaðargjald, þar til lokaáfanganum er náð.
Með því að greiða staðfestingargjaldið þá tökum við frá tíma og byrjum að áætla umfangið.
Boðið er upp á gerð á gæðabókar, ráðgjöf eða aðstoð við gerð gæðabókar í matvælavinnslu í samræmi við HACCP kröfur. Gæðabók er lykilverkfæri til að tryggja samræmi, rekjanleika og öryggi í allri vinnslu.
Í ferlinu er meðal annars unnið með:
- Greiningu á starfsemi og helstu áhættum
- Uppbyggingu HACCP kerfis og skilgreiningu á mikilvægustu stýristigum (CCP)
- Skráningu verkferla og verklagsreglna
- Gerð þrifaáætlana og eftirlitsferla
- Rekjanleika, skráningar og skjölun
- Þjálfun starfsfólks og innleiðingu verklags
Lögð er áhersla á hagnýta nálgun þar sem gæðabókin er sniðin að rekstri hvers fyrirtækis og auðveld í notkun fyrir gæðastjóra og stjórnendur.
Markmiðið er að einfalda gæðastjórnun, auka öryggi matvæla og tryggja að starfsemin uppfylli kröfur eftirlitsaðila.