Aqua Foam Alkachlor Bambi
Aqua Foam Alkachor er mjög áhrifaríkt froðuhreinsiefni fyrir alla yfirborðsfleti, áhöld og búnað sem notaður er í matvælaiðnaði, sérstaklega í kjöt-, fisk- og alifuglavinnslu. Aqua Foam Alkachlor er vinsælasta yfirborðshreinsiefnið fyrir vinnslutæki í laxavinnslum víða um heim. Sama á við um hvítfisk-, kjöt- og alifuglavinnslu. Einnig notað við hreinsun á geymslum, lestarrýmum, búnaði o.þ.h., þar sem það skiptir miklu máli að yfirborð sé fullkomlega hreint. Frábært einnig til hreinsunar á flísalögðum veggjum, gólfum o.s.frv. í sundlaugum, sturtum og svipuðu umhverfi. Forðist notkun á áli og sinki. Við snertingu við sýru myndast eitrað gas. EKKI BLANDA VIÐ SÝRUR.
Dynamic Snippet þitt mun birtast hér...
Þessi skilaboð birtast vegna þess að þú gafst ekki upp bæði síu og sniðmát til að nota.