Færanleg þvottastöð 40bör LWPM II 4025
Lágþrýstiþvottastöð 40 bara á hjólum. Einstaklega hentug fyrir litlar vinnslur, eða líka stærri, þar sem starfsemin er dreifð um húsið. Þessi útgáfa inniheldur ekki slönguhjól. Ef um mörg mismunandi rými er að ræða, þá má festa slönguhjól á vegg á hverjum vinnslustað og rúlla stöðinni á milli. Stöðin hefur statíf fyrir sápu og sótthreinsi brúsa og það fylgir með þrýstislanga, byssa, spjót og spíssar.
Stöðin er einnig mjög hentug fyrir landeldið, þar sem hægt er að færa hana á milli kerja.
Þvottastöðvar með 40 bara lágþrýsing eru hentugustu stöðvarnar er varðar matvælaöryggi. Ástæðan er að þetta er hæsti þrýstingurinn sem lágþrýstikerfi geta skilað og því hefur tæknin góða þrifaeiginleika. Kosturinn við lágþrýstikerfin fram yfir háþrýstinginn er að krossmengun með skolvatninu eða loftborin krossmengun á sér síður stað.