HACCP2 hjá Aquatiq - Staðfestingargjald
Námskeiðið hentar starfsfólki og stjórnendum sem koma að gæðamálum og vilja styrkja verklag og eftirlit.
Námskeiðið hentar starfsfólki og stjórnendum sem koma að gæðamálum og vilja styrkja verklag og eftirlit.
Námskeiðsgjaldið er 75.000 kr + vsk per þátttakanda. Og. hópastærðir eru frá 5-20 manns. Með því að borga staðfestingargjald þá tökum við frá pláss og finnum tíma.
HACCP 2 er námskeið matvælaöryggis sem byggir á grunnþekkingu og fer í áhættur og fyrirbyggjandi aðgerðir í matvælavinnslu. Námskeiðið hentar starfsfólki og stjórnendum sem koma að gæðamálum og vilja styrkja verklag og eftirlit.
Á námskeiðinu er farið yfir:
Áhættur tengdar matvælaframleiðslu
- Örverur sem geta valdið sjúkdómum
- Mengun matvæla vegna efna
- Aðskotahlutir í matvælum
- Ofnæmisvaldandi efni og innihaldsefni
Meðhöndlun og geymsla matvæla
- Krossmengun: skilgreining og leiðir til að koma í veg fyrir hana
- Mikilvægi réttrar kælingar fyrir matvælaöryggi
Fyrirbyggjandi ráðstafanir
- Þrif og áætlanir um reglubundin þrif
- Varnir gegn meindýrum og eftirliti
- Val og eftirlit með birgjum: gæðakröfur og mat
- Kvörðun og regluleg prófun mælitækja
Starfsfólk og hæfni
- Umgengni, persónulegt hreinlæti og heilbrigðisástand starfsmanna
- Þjálfun: hæfnikröfur, þjálfun starfsmanna og gerð þjálfunaráætlana
Námskeiðið leggur áherslu á hagnýta nálgun og raunveruleg dæmi úr vinnslu.
Lengd: 4 klukkustundir (kennt yfir 2 daga)
Staðsetning:
- Í fundarsal hjá Aquatiq, Grandagarði 16, 101 Rvk.
Markmiðið er að efla skilning á áhættum, bæta verklag og styðja við örugga og faglega matvælavinnslu.