Aqua Foam PH Brúsi
Aqua Foam PH er fljótandi súrt hreinsiefni ætlað til að fjarlægja kalk- og próteinútfellingar af búnaði, gólfum og veggjum í matvælaiðnaði. Hentar sérstaklega vel til almennrar ryðfjarlægingar. Gott getur verið að nota Aqua Foam PH einu sinni í mánuði eða fyrir lengri stopp til djúpþrifa á vinnslubúnaði. Varan gefur mjög góða froðu og vinnur mjög vel. Það borgar sig að láta efnið liggja á lengi, en passa þarf að efnið þorni ekki á yfirborði. Bleyta má með að úða öðrum skammti af efninu yfir og lengja þannig virknitímann. Einnig getur verið gott að láta búnað ganga með efninu á til þess að fá fram mekaníska hreyfingu við þrifin. Ath. Inniheldur fosfórsýru.
Dynamic Snippet þitt mun birtast hér...
Þessi skilaboð birtast vegna þess að þú gafst ekki upp bæði síu og sniðmát til að nota.